Daglegt líf...

24.10.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Leikskólalífið

Vildi bara færa inn smá fréttir af prinsinum mínum. Hann er þessa dagana að laga sig að leikskóla. Fékk óvænt pláss á leikskóla sem er rétt fyrir handan hornið á Mávahlíðinni. Sem er auðvitað leikskólinn sem við vildum helst.

Þetta gengur líka bara þokkalega að venjast þessu. Auðvitað allt annað heldur en lúxusinn hjá dagmömmunni þar sem hann hefur verið ásamt einu til tveimur öðrum börnum. Aðeins meiri læti á 16 barna deild þar sem allir eru 1,5 árs til 2,5 árs, og kannski pínu erfitt að vera minnstur. Sértaklega þegar ein 2 ára stelpan rífur mann niður í gólfið á hárinu...:(

Sjálfri finnst mér verst að hafa ekki nægan tíma með prinsinum mínum þessa dagana, enda er hann bara skemmtilegur þegar maður gefur sér tíma til að leika. En það verður sko heldur betur slappað af og notið lífsins í desember... þá verður sko nógur tími:)

 



Varanleg slóð Athugasemdir (6)

4.9.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Allir hressir

Jamm og já það er alltaf sama virknin á þessu bloggi hérna:)


En það er nú allt í góðum gír hjá fjölskyldunni eins og venjulega.

Frábært sumar að baki og allir komnir á fullt aftur, í dagmömmu, skóla og vinnu.

Móðirin byrjuð í Háskólanum og búið að vera full keyrsla á því frá fyrsta degi. En ofsalega gaman og alls ekki yfir neinu að kvarta... Kemur vonandi sem minnst niður á litla prinsinum en það er alltaf voða stutt í samviskubitið hjá manni gagnvart þessari elsku...


Hákon er allur að mannast og farin að tjá sig á fullu þó maður skilji nú takmarkað ennþá:)

Ekki kominn með leikskólapláss ennþá en þeir eru nú bara tveir hjá dagmömmunni núna svo hann fær allavega nóga athygli sem honum líkar nú ekkert illa...


Engar myndir í myndasafni þetta skiptið, er að "vinna í málunum" læt hinsvegar fylgja hér þrjár myndir af rólófílíng sumarsins, en við mæðginin vorum aldeilis öflug í rólóferðunum í blíðunni:)

P1040640

P1040595_(Medium)


P1040717_(Medium)

i



Varanleg slóð Athugasemdir (10)

14.7.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Nýjar myndir í myndasafni

Búin að setja myndir frá apríl og maí í myndasafnið. Er að vinna í afgangnum...

P1040268_(Medium)



Varanleg slóð Athugasemdir (6)

12.5.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Fyrstu skrefin

Hákon Hinrik er í mjög góðum gír þessa dagana. Hann er farinn að standa óstuddur og búin að taka allra fyrstu skrefin. Þetta er þó ekki alveg komið með labbið en stutt í það... Maður er bara miklu fljótari að skríða þetta...


Þessi 1 árs aldur er í miklu uppáhaldi hjá mér, það er mikið um að vera, alltaf verið að brasa eitthvað, hræra í pottum, babla, knúsa, klappa, standa og skríkja. Maður er líka að fatta hvað mamma manns er frábær og skellir stundum einum vel blautum á hana...heh


Við Reynir skelltum okkur til Berlínar síðustu helgi og alltaf jafn gott að komast aðeins í burtu. Fá smá sól og slappa af. Hákon var hjá ömmu sinni á meðan og það var bara rosa stuð hjá kallinum í helgarfríi á Skaganum. Svo tók ég mér frí í síðustu viku og var í mömmuleik með Hákon. Ekki slæmt að taka smá forskot á sumarfríið.


Sem sagt bara góð stemning í Mávahlíðinni og engum sem leiðist að sumarið sé að ganga í garð og auðvitað eru miklar væntingar um sól og sumarblíðu á næstu mánuðum... :)



Varanleg slóð Athugasemdir (3)

10.4.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : 1 árs strákur

Löngu kominn tími á blogg og nýjar myndir hérna....

Litli drengurinn minn er orðinn stór krakki og búinn að halda upp á fyrsta afmælið sitt.

Karlinn var reyndar hálf slappur á afmælisdaginn eftir öll veikindin í mars. Tók út tvær svaka pestir sem lentu hver ofan í annarri. Þar sem hann sat bara dofinn í fanginu á manni með bullandi hita. Seinni pestin endaði með pensilíni pústi og öllum græjum...

En gaurinn er allur kominn til og farinn að vera hjá dagmömmunni aftur.


Verð að segja að fyrsta árið í lífi fyrsta barnsins míns var alveg skuggalega fljótt að líða. Maður er rétt svo að venjast hugmyndinni um að maður eigi lítið barn og allt í einu er maður bara að halda upp á barnaafmæli eins og ekkert sé sjálfsagðara. “Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag....” og allur pakkinn;)

Drengurinn er líka orðinn svo fullorðinslegur sí bablandi (á sínu tungumáli þó), geysist hér um allar trissur, og nær með ótrúlegum brögðum í allt sem hann á ekki að ná í. Rífur upp allar skúffur og mokar upp úr þeim á gólfið. Algjör perla.


Settið er hinsvegar farið að telja niður dagana fyrir fyrirhugaða Berlínarferð í byrjun næsta mánaðar. Jibbý! Langþráð ferð út á Leifstöð:)


Búin að setja inn myndir frá febrúar og mars í myndasafnið




Varanleg slóð Athugasemd (1)

10.4.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Einu sinni var....

Drengur

P1000845

sem stækkaði....

P1030709

á innan við ári....

 



Varanleg slóð Athugasemdir (3)

28.2.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Verslunarferð með Hákoni

Það getur verið gaman að fara með Hákon Hinrik minn í búð. Þá hefur hann nóg að skoða, spá og spekulera. Stundum er hann mest spenntur yfir hinu fólkinu og gerir mikið til að ná athygli þess. Hækkar róminn “da da da da” svo það fer ekki fram hjá neinum og svo kastar hann brosi á þá sem falla fyrir bragðinu. Það er líka merkilegt hvað hann nær að laða fram einlæg og breið bros hjá ótrúlegasta fólki sem er þungbúið í verslunarferð....:)


 



Varanleg slóð Athugasemdir (3)

7.2.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Dagvistun

Góðar og frábærar fréttir! Hákon er líklegast komin með dagmömmu eða konu sem er til í að passa hann meðan við Reynir erum í vinnunni. Það er sko þokkalegu fargi af manni létt þegar maður sér að þetta geti jafnvel verið að ganga upp. Hann er búinn að fara núna tvisvar sinnum í rúman klukkutíma og allt hefur gengið vel.


Ég er búin að liggja í símanum og hringja hingað og þangað, leikskóla og dagmömmur frá því að barnið var nokkurra vikna, og fá eintóm nei og því miður. Þangað til um daginn að þessi góða kona sagðist vera til í að passa barnið og maður var sko fljótur að bíta á agnið:) Hún er með tvö önnur börn sem eru á svipuðum aldri og Hákon, svo það verður bara svaka stuð fyrir kallinn að losna aðeins við gamla settið og leika við krakkana.


Hákon gerir manni þetta líka auðveldara fyrir, hann er svo spenntur þegar hann kemst í nýtt umhverfi að honum er sko alveg sama þó mútterin láti sig hverfa. Ég er svo fegin að þurfa ekki að skilja hann grátandi eftir einhverstaðar þegar maður þarf pössun. Það yrði náttúrlulega óbærileg kvöl fyrir móðurhjartað...


Annars er ég aðframkomin af þreytu eftir hvern daginn. Veit ekki hvað þetta er með mig... Erfitt að venjast þessu litla svigrúmi að mæta klukkan hálf átta, átta í vinnunna og þurfa helst að fara að sofa klukku tíma eftir að litli maður sofnar...

En eins og sagt hefur verið: “This family has to rest a lot”! hehehe



Varanleg slóð Athugasemdir (4)

26.1.2008 María Hrönn Nikulásdóttir : Hversdagsleikinn og snjórinn

Daglegt líf og amstur gengur barasta fínt í Mávahlíðinni þessa dagana. Hákon er á fleygiferð um allt, og mamman og pabbinn fylgja fast á eftir " Ekki þetta Hákon, NEI", "Sjáðu dótið þitt, leiktu með dótið þitt", "innstungan, óóó, NEI NEI", "komdu, ekki þetta".......

Kannski eitthvað til í því sem skemmtileg 3 ára frænka mín syngur: "Þetta fullorðna fólk er svo skrítið, alltaf að skamma mann, það gerir aldrei neitt, bara alltaf að skamma mann":-)

 

Maður fær hressilega að finna fyrir vetrinum þessa dagana. Enda rúllar fólkið á þessu heimili út eins og snjóboltar í hvert sinn sem farið er út fyrir hússins dyr:) Ullarpeysa og gönguskór er eitthvað sem komið hefur sér vel þessa síðustu daga.  

Við erum líka aðeins farina ð leyfa Hákoni að leika í snjónum, eins og hverjum öðrum stórum krakka. Það er reyndar svoldið erfitt að hreyfa sig þegar búið er að dúða mann upp úr og niðrúr, en þar sem minn maður er nú svoldið mikið fryir að horfa, spá og spökulegra við nýjar aðstæður, þá er þetta nú bara svoldið sport.

 



Varanleg slóð Athugasemdir (3)

5.1.2008 Reynir Þ. Hübner : jólin og nýja árið...

Jæja, loksins komin helgi, eftir erfiða vinnuviku. Þá er tilvalið að dúndra nokkrum myndum inn á netið af snillingum, og öðrum þeim er þar koma við sögu.

unginn

það eru s.s. nýjar myndir í myndasafninu, eða eins og Hákon myndi sjálfur segja "ETTA!!!"



Varanleg slóð Athugasemdir (4)