Hversdagsleikinn og snjórinn
Daglegt líf og amstur gengur barasta fínt í Mávahlíðinni þessa dagana. Hákon er á fleygiferð um allt, og mamman og pabbinn fylgja fast á eftir " Ekki þetta Hákon, NEI", "Sjáðu dótið þitt, leiktu með dótið þitt", "innstungan, óóó, NEI NEI", "komdu, ekki þetta".......
Kannski eitthvað til í því sem skemmtileg 3 ára frænka mín syngur: "Þetta fullorðna fólk er svo skrítið, alltaf að skamma mann, það gerir aldrei neitt, bara alltaf að skamma mann":-)
Maður fær hressilega að finna fyrir vetrinum þessa dagana. Enda rúllar fólkið á þessu heimili út eins og snjóboltar í hvert sinn sem farið er út fyrir hússins dyr:) Ullarpeysa og gönguskór er eitthvað sem komið hefur sér vel þessa síðustu daga.
Við erum líka aðeins farina ð leyfa Hákoni að leika í snjónum, eins og hverjum öðrum stórum krakka. Það er reyndar svoldið erfitt að hreyfa sig þegar búið er að dúða mann upp úr og niðrúr, en þar sem minn maður er nú svoldið mikið fryir að horfa, spá og spökulegra við nýjar aðstæður, þá er þetta nú bara svoldið sport.


3 Athugasemdir
Marta skrifar :
Aldrei má maður ekki neitt ;) Tók eftir því í síðustu heimsókn að það er farið að færast fjör í leikinn.
29.01.2008, kl. 9:04 | #
Jóna frænka skrifar :
Bara raða dótinu hærra og leyfa drengnum að leika sér í staðinn fyrir að skamma uppáhalds frænda minn ;)
29.01.2008, kl. 19:11 | #
Anna Björk skrifar :
Hann er náttúrulega orðinn krakki drengurinn - örugglega flottur í snjónum. Vona að greyið hafi fengið almennilega að borða eftir ósköpin hjá frænku sinni um daginn;)
30.01.2008, kl. 13:20 | #