Dagvistun

7.2.2008

Góðar og frábærar fréttir! Hákon er líklegast komin með dagmömmu eða konu sem er til í að passa hann meðan við Reynir erum í vinnunni. Það er sko þokkalegu fargi af manni létt þegar maður sér að þetta geti jafnvel verið að ganga upp. Hann er búinn að fara núna tvisvar sinnum í rúman klukkutíma og allt hefur gengið vel.


Ég er búin að liggja í símanum og hringja hingað og þangað, leikskóla og dagmömmur frá því að barnið var nokkurra vikna, og fá eintóm nei og því miður. Þangað til um daginn að þessi góða kona sagðist vera til í að passa barnið og maður var sko fljótur að bíta á agnið:) Hún er með tvö önnur börn sem eru á svipuðum aldri og Hákon, svo það verður bara svaka stuð fyrir kallinn að losna aðeins við gamla settið og leika við krakkana.


Hákon gerir manni þetta líka auðveldara fyrir, hann er svo spenntur þegar hann kemst í nýtt umhverfi að honum er sko alveg sama þó mútterin láti sig hverfa. Ég er svo fegin að þurfa ekki að skilja hann grátandi eftir einhverstaðar þegar maður þarf pössun. Það yrði náttúrlulega óbærileg kvöl fyrir móðurhjartað...


Annars er ég aðframkomin af þreytu eftir hvern daginn. Veit ekki hvað þetta er með mig... Erfitt að venjast þessu litla svigrúmi að mæta klukkan hálf átta, átta í vinnunna og þurfa helst að fara að sofa klukku tíma eftir að litli maður sofnar...

En eins og sagt hefur verið: “This family has to rest a lot”! hehehe



4 Athugasemdir

  1. Jóna frænka skrifar :

    Hvíla sig nei það getur ekki verið hehe
    En glæsó að Hinni minn sé komin með dagmömmu og hann fer sko ekki að væla og skjæla þótt hann sé skilin eftir, bara fegin að losna við foreldrana í smá stund ;)

    08.02.2008, kl. 17:22 | #

  2. Anna Björk skrifar :

    Hvað er þetta með þessa þreytu - eru þetta ekki bara óléttueinkenni...;) Frábært að Hákoni líkar vel að kíkja í pössun, maður er búinn að stressast upp með ykkur í þessari dagmömmuleit

    13.02.2008, kl. 14:09 | #

  3. Heiðrún Hámundar skrifar :

    Til lukku með dagvistunina og frábært hvað honum líkar vel!

    13.02.2008, kl. 17:33 | #

  4. Heba skrifar :

    Múhaha..
    Til lukku með dagmömmuna...
    Frábært fyrir alla aðila bara :o)
    Sjáumst á þriðjudag þreytta mamma ;o)
    knús

    19.02.2008, kl. 21:51 | #

Skrifa athugasemd