Fyrstu skrefin

12.5.2008

Hákon Hinrik er í mjög góðum gír þessa dagana. Hann er farinn að standa óstuddur og búin að taka allra fyrstu skrefin. Þetta er þó ekki alveg komið með labbið en stutt í það... Maður er bara miklu fljótari að skríða þetta...


Þessi 1 árs aldur er í miklu uppáhaldi hjá mér, það er mikið um að vera, alltaf verið að brasa eitthvað, hræra í pottum, babla, knúsa, klappa, standa og skríkja. Maður er líka að fatta hvað mamma manns er frábær og skellir stundum einum vel blautum á hana...heh


Við Reynir skelltum okkur til Berlínar síðustu helgi og alltaf jafn gott að komast aðeins í burtu. Fá smá sól og slappa af. Hákon var hjá ömmu sinni á meðan og það var bara rosa stuð hjá kallinum í helgarfríi á Skaganum. Svo tók ég mér frí í síðustu viku og var í mömmuleik með Hákon. Ekki slæmt að taka smá forskot á sumarfríið.


Sem sagt bara góð stemning í Mávahlíðinni og engum sem leiðist að sumarið sé að ganga í garð og auðvitað eru miklar væntingar um sól og sumarblíðu á næstu mánuðum... :)



3 Athugasemdir

  1. Anna Björk skrifar :

    Ekkert smá flottur sumardagur í dag:) Þetta verður náttúrulega besta sumar ever... Bíð spennt eftir að sjá Hákon spretta úr spori.

    14.05.2008, kl. 20:17 | #

  2. Karen skrifar :

    Algjört æði að hlaða batteríin aðeins í burtu og koma svo endurnærður heim aftur. Það er sama á teningnum hjá okkur, miklar væntingar um gott sumar og sól og margar Langasandsferðir.
    Bestu kveðjur af Skólabrautinni.
    Karen

    14.05.2008, kl. 23:20 | #

  3. Bergljót skrifar :

    Hæhæ!
    Rosalega var gaman að fá ykkur í heimsókn í dag. Takk fyrir daginn sætu mæðgin.
    Kveðja frá okkur úr Árbænum

    16.05.2008, kl. 21:03 | #

Skrifa athugasemd