Allir hressir
Jamm og já það er alltaf sama virknin á þessu bloggi hérna:)
En það er nú allt í góðum gír hjá fjölskyldunni eins og venjulega.
Frábært sumar að baki og allir komnir á fullt aftur, í dagmömmu, skóla og vinnu.
Móðirin byrjuð í Háskólanum og búið að vera full keyrsla á því frá fyrsta degi. En ofsalega gaman og alls ekki yfir neinu að kvarta... Kemur vonandi sem minnst niður á litla prinsinum en það er alltaf voða stutt í samviskubitið hjá manni gagnvart þessari elsku...
Hákon er allur að mannast og farin að tjá sig á fullu þó maður skilji nú takmarkað ennþá:)
Ekki kominn með leikskólapláss ennþá en þeir eru nú bara tveir hjá dagmömmunni núna svo hann fær allavega nóga athygli sem honum líkar nú ekkert illa...
Engar myndir í myndasafni þetta skiptið, er að "vinna í málunum" læt hinsvegar fylgja hér þrjár myndir af rólófílíng sumarsins, en við mæðginin vorum aldeilis öflug í rólóferðunum í blíðunni:)
i


10 Athugasemdir
Heiðrún Hámundar skrifar :
Yndislegar myndir af drengnum, eins og alltaf;o)
Hvað ert þú að stúdera í Háskólanum Maja mín?
Knus og kram,
Heiðrún
07.09.2008, kl. 15:32 | #
Maja skrifar :
Takk fyrir það;)
Er að læra meiri sálfræði... rosa gaman:)
Bestu kveðjur
07.09.2008, kl. 19:39 | #
Jóna frænka skrifar :
Er ekki frá því að drengurinn sé jafn fallegur og mammann ;)
08.09.2008, kl. 16:47 | #
bippi skrifar :
Hann er bara jafn myndarlegur og allur karlpeningur í þessari ætt!!
09.09.2008, kl. 16:51 | #
Maja skrifar :
Þetta eru skemmtilegar kenningar:)
Hallast reyndar að því að hann sé aðeins mun sætari en allir í heiminum....heh
09.09.2008, kl. 22:40 | #
Rósa skrifar :
Hæ og hó Sætastur !!! Eru þessar myndir teknar í bakgarðinum ykkar ? KK frá sveitasokkunum á Stokkseyri
26.09.2008, kl. 9:13 | #
Bergljót og Hrafnhildur Lóa skrifar :
Hæhæ!
Verðum nú að fara að hittast þegar þú átt stund milli stríða í lestrinum og lærinu :)
Húfan er alltaf í töskunni hjá mér og alltaf á leiðinni til ykkar, hahaha.
Kveðja héðan úr árbænum.
30.09.2008, kl. 11:29 | #
Maja skrifar :
Já einmitt húfan... var búin að gleyma henni:)
Verðum endilega að plana hitting fljótlega...!
02.10.2008, kl. 12:22 | #
Jóna frænka skrifar :
Jæja á ekkert að fara að skrifa eitthvað skemmtilegt og setja kannski nokkrar myndir með ;)
02.10.2008, kl. 16:39 | #
reynir skrifar :
já Rósa, þið verðið nú bara að fara að kíkja í heimsókn!.. Þessar myndir eru nú bara teknar í fjölskyldugarðinum í laugardalnum, og úti á túni hérna rétt hjá, kenndu við klambra... við erum alltaf á leiðinni austur í kaffi líka...
mbk, -reynir
02.10.2008, kl. 22:16 | #