Leikskólalífið

24.10.2008

Vildi bara færa inn smá fréttir af prinsinum mínum. Hann er þessa dagana að laga sig að leikskóla. Fékk óvænt pláss á leikskóla sem er rétt fyrir handan hornið á Mávahlíðinni. Sem er auðvitað leikskólinn sem við vildum helst.

Þetta gengur líka bara þokkalega að venjast þessu. Auðvitað allt annað heldur en lúxusinn hjá dagmömmunni þar sem hann hefur verið ásamt einu til tveimur öðrum börnum. Aðeins meiri læti á 16 barna deild þar sem allir eru 1,5 árs til 2,5 árs, og kannski pínu erfitt að vera minnstur. Sértaklega þegar ein 2 ára stelpan rífur mann niður í gólfið á hárinu...:(

Sjálfri finnst mér verst að hafa ekki nægan tíma með prinsinum mínum þessa dagana, enda er hann bara skemmtilegur þegar maður gefur sér tíma til að leika. En það verður sko heldur betur slappað af og notið lífsins í desember... þá verður sko nógur tími:)

 



6 Athugasemdir

  1. reynir skrifar :

    nýjar myndir (nýlegar allavega) af prinsinum, merkt haust 08 í myndasafninu...(tók því nú ekki að skrifa heila færslu fyrir það)...

    24.10.2008, kl. 22:48 | #

  2. Jóna frænka skrifar :

    Hann er nottla bara sætur essi eska ;)
    En getur verið að það glitti í mömmu hans þarna að leggja sig á einni myndinni hehe ;)

    25.10.2008, kl. 11:00 | #

  3. Anna Björk skrifar :

    Flottur að venju:) En vonandi verður tempóið ekki héðan í frá "haust - vetur - vor - sumar" í myndunum ... Það er svo gaman að skoða gæjann!

    25.10.2008, kl. 11:11 | #

  4. Maja skrifar :

    Leggja sig ... hvaða vitleysa... ég var bara í feluleik...;-)

    Ekki meiningin að láta líða svona langt á milli mynda, tíminn flýgur bara frá manni... krakkinn verður líklega kominn í mútur áður en maður veit af... :) (annars sé ég engar haustmyndir á Vogabrautarsíðunni:))


    25.10.2008, kl. 13:25 | #

  5. Jóna frænka skrifar :

    Hákon frændi minn fer ekki í mútur :(
    Það verður hræðilegt hahaha

    25.10.2008, kl. 15:34 | #

  6. Heiðrún Hámundar skrifar :

    Já, tíminn er ótrúlega fljótur að líða.. litli drengurinn minn er í mútum!!!

    Yndislegar myndir og gangi ykkur vel í aðlögun;o)

    26.10.2008, kl. 19:56 | #

Skrifa athugasemd